Kokkakeppni í Rimaskóla

Kokkakeppni í Rimaskóla

Kaupa Í körfu

SKÓLAELDHÚSIÐ í Rimaskóla var fullt af hvítklæddum krökkum með kokkahúfur í gær og mikilll handagangur í öskunni við að koma rjúkandi matardiskum á langborð þar sem dómarar gengu á milli og brögðuðu á kræsingunum. Kokkakeppni skólans var nú haldin í fimmta sinn og krakkar á aldrinum fjórtán til sextán ára kepptu í því að reiða fram sem ljúffengastan og glæsilegastan aðalrétt í tveggja til fjögurra manna liðum. Nemendur velja sér uppskrift og miðað er við að hráefnið kosti ekki meira en þúsund krónur. MYNDATEXTI Ásdís Heiðarsdóttir, Kristín Björk Smáradóttir, Birta Baldursdóttir og Ástrós Kristinsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar