Haukar - Keflavík

Haukar - Keflavík

Kaupa Í körfu

MÓTSPYRNA Haukakvenna var öflug er þær fengu Keflavík í heimsókn í Hafnarfjörðinn í gærkvöldi til að spila annan leikinn í undanúrslitum en sú barátta dugði aðeins fram í þriðja leikhluta. Þá efldu Keflvíkingar vörnina og héldu Victoriu Crawford frá leiknum, sem sló Hafnfirðinga alveg út af laginu, skoruðu átta stig í röð þegar vörn Hauka steinsvaf á verðinum og unnu að lokum örugglega 96:85. Liðin mætast í þriðja sinn annað kvöld þar sem deildarmeistarar Keflavíkur geta með sigri tryggt sér sæti í úrslitum. MYNDATEXTI TaKesha Watson lék vel með Keflavík í gærkvöld og skoraði 34 stig, og hér grípur hún boltann í harðri baráttu við Guðbjörgu Sverrisdóttur úr Haukum. Hrönn Þorgrímsdóttir úr Keflavík er á milli þeirra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar