Buslað í Nauthólsvík

Buslað í Nauthólsvík

Kaupa Í körfu

Ekkert lát virðist ætla að vera á sumarblíðu og sólskini, sem gælt hefur við landsmenn undanfarna daga. Reynslan hefur samt sem áður kennt okkur að nýta sólskinsdagana til hins ýtrasta, því ekki eru þeir margir á ári hverju. Margir hverjir neyðast til að húka inni við vinnu meiripart dags, en er ekki þar með sagt að þeir fari varhluta af góða veðrinu. MYNDATEXTI Köld gusa Á heitum degi getur verið gott að fá yfir sig svala vatnsgusu til að kæla sig niður og ekki er heldur leiðinlegt að fá að vera sá sem að skvettir. Það er ávísun á skemmtilegan dag að skella sér í Nauthólsvík og baða sig með vinum og vandamönnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar