Vatnsbuna við Vesturlandsveg

Vatnsbuna við Vesturlandsveg

Kaupa Í körfu

SJÓÐHEIT vatnsbuna stóð út í loftið þegar önnur af aðalvatnsleiðslum borgarinnar, Reykjaæð, fór í sundur við Laxalón, skammt frá golfvellinum í Grafarholti í gærmorgun. Lokað var fyrir vatnsstreymi um lögnina í kjölfarið vegna viðgerðar og var heitavatnsskortur á öllu höfuðborgarsvæðinu vegna þessa. Enn var ekki vitað um orsakir þess að leiðslan rofnaði þegar Morgunblaðið fór í prentun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar