Haus frá Ekvador

Haus frá Ekvador

Kaupa Í körfu

GUNNAR I. Birgisson og Hilmar J. Malmquist buðu sérkennilegan gest velkominn með virktum á Náttúrufræðistofu Kópavogs í gær. Að vísu gátu þeir ekki tekið í höndina á honum, enda er hann ekkert nema höfuðið, en um er að ræða 175 ára gamlan töframann Shuar-indíánaþjóðflokksins í Ekvador. Töframaðurinn er heiðursgestur á suðuramerískri menningarhátíð sem hefst í Kópavogi í dag og geta áhugasamir barið höfuðið herta augum á Náttúrufræðistofu ásamt fleiri ekvadorskum sýningargripum, m.a. skildi af risaskjaldböku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar