Anna Birna og Ólöf

Anna Birna og Ólöf

Kaupa Í körfu

Við erum orðnar háðar þessu. Við getum ekki hætt að fara á Íslendingasagnanámskeið. Það verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra. Við finnum sífellt nýjar tengingar milli sagnanna og við komumst alltaf lengra inn í fornsögurnar okkar. Auk þess er þetta svo skemmtilegur félagsskapur,“ segja þær Anna Birna Jóhannesdóttir og Ólöf Sigurðardóttir, en þær hafa undanfarinn rúman áratug farið árlega á námskeið um fornsögurnar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þær lesa eina sögu á haustönn og aðra á vorönn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar