Geir tilkynnir veikindi og boðar kosningar

Geir tilkynnir veikindi og boðar kosningar

Kaupa Í körfu

FORYSTUMENN stjórnarandstöðuflokkanna fagna því að gengið verði til kosninga í vor. Sumir þeirra vilja þó að kosið verði í apríl en ekki í byrjun maí eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt til. Mikil fundarhöld verða á næstunni. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur þegar sett á fót miðlæga kosningastjórn. Eftir er að greiða úr þeirri stöðu sem upp er komin í stjórnmálunum eftir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti um veikindi sín í gær og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins tók undir hugmyndir um að gengið yrði til kosninga í vor MYNDATEXTI Mótmælt Árni M. Mathiesen fékk athugasemdir þegar hann mætti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar