Valur - Stjarnan

Valur - Stjarnan

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMEISTARAR Stjörnunnar endurheimtu efsta sæti úrvalsdeildar kvenna í handknattleik í gærkvöldi með öruggum sigri á Val, 23:17. Eins og áður í vetur skein stjarna hinnar efnilegu Þorgerðar Önnu Atladóttur, skært. Hún er aðeins 16 ára og á ekki langt að sækja hæfileikana. Foreldrarnir, Atli Hilmarsson og Hildur Kristjana Arnardóttir, voru framúrskarandi í íþróttinni á sínum yngri árum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar