FH - Haukar

FH - Haukar

Kaupa Í körfu

OKKUR þyrstir í að koma fram hefndum gegn Fimleikafélaginu. Við erum búnir að vera á góðu róli að undanförnu og höfum unnið bæði Val og Fram eftir fríið og nú er komin röðin að FH. Það er allt annar bragur á okkar liði núna, ekki síst andlega, og menn eru meðvitaðri um sín hlutverk,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaðurinn öflugi í liði Hauka, þegar hann var spurður út í leikinn gegn FH sem fram fer í kvöld. Kári segir að hann og félagar hans séu búnir að bíða lengi eftir að fá FH-ingana í heimsókn á Ásvelli. MYNDATEXTI Kári Kristján Kristjánsson er í stóru hlutverki hjá Haukum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar