Stjarnan er handhafi allra titla

Stjarnan er handhafi allra titla

Kaupa Í körfu

KVENNALIÐ Stjörnunnar sýndi enn eina ferðina úr hverju það er gert þegar liðið varði bikarmeistaratitil sinn í handknattleik á laugardag. Lagði Stjarnan lið FH að velli, 27:22. Leikurinn var jafn og spennandi allan fyrri hálfleikinn og skiptust liðin á að hafa forystu. Hafði Stjarnan lítið forskot í hálfleik, 14:13. En strax í upphafi síðari hálfleiks fóru Stjörnukonur langt á reynslunni og keyrðu yfir FH-liðið. MYNDATEXTI Stjörnukonur lyftu Eimskipsbikarnum á loft í Laugardalshöllinni á laugardag í annað skipti á jafnmörgum árum. Liðið er handhafi allra titla sem eru í boði á Íslandi þessa stundina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar