Dís eignaðist hafur í dag

Dís eignaðist hafur í dag

Kaupa Í körfu

Vorboðar komnir á stjá í Húsdýragarðinum HANN var ekki lengi að koma sér af stað og byrja að skoða heiminn, kiðlingurinn sem huðnan Dís eignaðist í Húsdýragarðinum í gær. Líkt og kiðlingarnir, sem þegar hafa komið í heiminn á þessu ári, á hann líka efalítið eftir að verða vinsæll hjá ungum gestum garðsins er fram líða stundir. Huðnurnar eru um það bil tveimur mánuðum á undan áætluðum burði hjá ánum, en samkvæmt því sem segir á vefsíðu Húsdýragarðsins, þá ríkja frjálsar ástir í geitastíunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar