Eva Joly og Ragna Árnadóttir

Eva Joly og Ragna Árnadóttir

Kaupa Í körfu

ÞETTA snýst um að fylgja peningunum (follow the money),“ sagði franski rannsóknardómarinn fyrrverandi, Eva Joly, á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær þar sem hún var formlega kynnt sem ráðgjafi embættis sérstaks saksóknara við rannsókn á mögulegum lögbrotum vegna bankahrunsins. Joly lét orðin falla eftir að hún var spurð hvort hún óttaðist að það væri búið að eyða gögnum sem myndu torvelda rannsókn, í ljósi þess að tæplega hálft væri síðan bankarnir hrundu. Joly sagðist ekki óttast það.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar