Auður Berta heilsar uppá ísbjörn í Bankastræti

Auður Berta heilsar uppá ísbjörn í Bankastræti

Kaupa Í körfu

HIN tveggja ára Auður Berta klappaði óhrædd hvítabirninum sem gætti minjagripaverslunarinnar The Viking ásamt öðrum birni í síðustu viku. Að sögn Sigurðar Guðmundssonar, eiganda verslunarinnar, hafa birnirnir tveir vakið mikla kátínu meðal vegfarenda í Bankastræti að undanförnu. „Þetta er það jákvæðasta sem hefur komið fyrir miðborgina í nokkra mánuði,“ fullyrðir Sigurður, „þetta gleður gesti og gangandi“. Sigurður segir bangsana hafa góð áhrif á viðskiptin, enda taki nokkur hundruð manns myndir af þeim á degi hverjum. Er þar aðallega um erlenda ferðamenn að ræða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar