Hrafninn farinn af hreiðrinu

Hrafninn farinn af hreiðrinu

Kaupa Í körfu

HRAFNINN sem gætti svo vandlega eggja á klettasyllu í borgarlandinu fyrir rúmri viku er nú floginn. Egg lágu brotin utan við laupinn, eins og hreiður hrafna eru gjarnan kölluð, er ljósmyndari Morgunblaðsins kom þar við í gær. Verður að telja líklegt að einhver hafi steypt undan fuglinum, en ekki eru allir jafnhrifnir af þessum ránfugli sem gæðir sér gjarnan á eggjum annarra fugla.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar