Rannveig Guðleifsdóttir

Rannveig Guðleifsdóttir

Kaupa Í körfu

Nýverið var opnuð síða þar sem finna má upplýsingar um garðplöntur sem eru í ræktun á Íslandi en þar setti Rannveig Guðleifsdóttir allar plöntur inn sem eru í garðinum hennar, en það er dágóður slatti. Hún sáir nýjum plöntum á hverju ári en segist ekki hafa tölur yfir hve margar plöntur eru í garði hennar. MYNDATEXTI Rannveig Guðleifsdóttir: Ég hef til dæmis mjög gaman af því að sá sjálf, sérstaklega fjölæringum og prófa eitthvað nýtt til að sjá hvað gengur og hvað gengur ekki. Það bætist því einhver slatti við garðinn á hverju ári sem mér finnst voðalega skemmtilegt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar