Ný vél Landhelgisgæslunnar kemur til landsins

Ný vél Landhelgisgæslunnar kemur til landsins

Kaupa Í körfu

HREYFLARNIR höfðu stöðvast á nýju Dash 8 eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, sem hlotið hefur nafnið TF-SIF, og Benóný Ásgrímsson, flugstjóri, steig skælbrosandi út ásamt áhöfn sinni. Fjölmargir prúðbúnir fyrrverandi og núverandi starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku ofan hvít kaskeiti sín, virtu fyrir sér tignarlega vélina og klöppuðu himinlifandi. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, gekk fram og tók á móti áhöfninni. MYNDATEXTI Tölvur Auðunn Kristinsson stýrimaður segir tækjabúnaðinn af bestu gerð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar