Stjarnan - KR

Stjarnan - KR

Kaupa Í körfu

TRYGGVI Bjarnason miðvörður Stjörnunnar gerði nánast út um vonir sinna gömlu samherja í KR um að veita Íslandsmeisturum FH einhverja keppni um titilinn, þegar hann skoraði gegn þeim í uppbótartíma í Garðabænum í gærkvöldi. Í síðustu sókn leiksins voru nánast allir leikmenn liðanna komnir inn í vítateig KR-inga þar sem boltinn féll fyrir Tryggva eftir mikinn hamagang. Tryggvi nýtti tækifærið og 1:1 jafntefli var staðreynd í þessum mikilvæga leik í efri hluta Pepsí deildarinnar.. MYNDATEXTI Barátta Halldór Orri Björnsson úr Stjörnunni og Skúli Jón Friðgeirsson úr KR eigast við á Stjörnuvelli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar