FH - KR

FH - KR

Kaupa Í körfu

GÖMLU erkifjendurnir Valur og KR drógust saman í bikarkeppni karla í knattspyrnu í gær, þegar dregið var til átta liða úrslitanna. Annar nágrannaslagur verður í Kópavogi þar sem HK og Breiðablik mætast. Keflavík fékk heimaleik gegn FH, og Fram tekur á móti Fylki. Hjá konunum drógust saman Breiðablik og Fylkir annars vegar og Valur og Stjarnan hins vegar. MYNDATEXTI Mætast Atli Eðvaldsson og Logi Ólafsson eru fyrrum landsliðsþjálfarar Íslands. Þeir mætast tvisvar á næstunni sem þjálfarar Vals og KR, strax á laugardaginn í úrvalsdeildinni, á KR-vellinum, og svo eigast Reykjavíkurfélögin við í átta liða úrslitum bikarkeppninnar þann 30. júlí, þá að Hlíðarenda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar