FH - Keflavík

FH - Keflavík

Kaupa Í körfu

VEÐRIÐ lék við hvurn sinn fingur á laugardaginn þegar Íslandsmeistarar FH gerðu 2:2 jafntefli gegn Keflavík í 12. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Keflavík er eina liðið sem unnið hefur FH í sumar, í fyrsta leik mótsins á Suðurnesjunum. Bæði lið glímdu við meiðsli, en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sem talinn er hafa á að skipa breiðasta og besta hópnum á landinu, var aðeins með sex varamenn í leiknum. Þá var Matthías Guðmundsson í stöðu hægri bakvarðar, en Matthías er þekktari fyrir afrek sín á miðjunni eða í framlínunni. MYNDATEXTI Ánægðir Keflvíkingar höfðu ástæðu til að fagna í Kaplakrika á laugardag. Þeir jöfnuðu undir lokin og stöðvuðu sigurgöngu FH. Þeir unnu FH-inga í fyrstu umferð og eru því eina liðið sem meistararnir hafa ekki lagt að velli. Liðin mætast svo í bikarnum undir lok mánaðarins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar