Fundur fjárlaganefndar

Fundur fjárlaganefndar

Kaupa Í körfu

Þverpólitísk samstaða um afgreiðslu Icesave-málsins virðist vera í farvatninu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins úr stjórnarliðinu, þótt enn sé of snemmt að fullyrða hvort og þá hvenær slík lending næst. Á fulltrúa í minnihlutanum í fjárlaganefnd var það að heyra að þeir væru ágætlega vongóðir um að menn gætu náð saman. Fjárlaganefnd fundaði lungann úr deginum í gær og stóð þriðji formlegi fundur nefndarinnar langt fram eftir kvöldi og var ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun á tólfta tímanum. MYNDATEXTI Fundað stíft Fjárlaganefnd fundaði lungann úr deginum í gær og langt frameftir kvöldi. Ólöf Nordal, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðbjartur Hannesson og Árni Þór Sigurðsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar