HK - Þór

HK - Þór

Kaupa Í körfu

Það var ekki að sjá að HK og Þór væru lið í sömu deild þegar þau mættust á Kópavogsvelli í gærkvöldi en þá lauk 16. umferð 1. deildarinnar með tveimur leikjum. HK vann að lokum 3:0-sigur sem hefði hæglega getað orðið stærri en Jóhann R. Benediktsson tryggði Fjarðabyggð nauman 1:0-sigur á ÍR. MYNDATEXTI Karate Það sáust stundum falleg tilþrif á Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar HK-ingar unnu þar sigur á Þórsurum frá Akureyri og meðal annars buðu þeir Óðinn Árnason úr Þór og Aaron Palomares úr HK, sem báðir komu inn á sem varamenn, upp á þessar fínu karateæfingar sem sjálfur Bruce Lee væri stoltur af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar