Anders Fogh Rasmussen

Anders Fogh Rasmussen

Kaupa Í körfu

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Anders Fogh Rasmussen, segir menn meta mikils framlag Íslands til NATO. Hann álíti ekki að vilji ráðamanna hér til að taka áfram þátt í samstarfinu hafi dvínað. Við vitum að sem stendur eiga Íslendingar við mikla efnahagserfiðleika að stríða, eins og fleiri þjóðir. En ríkisstjórn Íslands hefur staðfest í samtölum við mig í dag að þið munuð sem fyrr leggja fram ykkar skerf til NATO og það nægir mér.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar