Spaugstofan

Spaugstofan

Kaupa Í körfu

ÞAÐ mætti halda að þarna sé forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, við tökur. En svo er nú ekki, þegar nánar er að gáð má sjá að þetta er aðeins leikarinn Pálmi Gestsson kominn í kunnuglegt gervi. Pálmi var við tökur á Spaugstofunni þegar þessari mynd var smellt af. Spaugstofan hefur aftur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld og augljóst er að Ólafi Ragnari verður ekki hlíft þennan veturinn frekar en þá fyrri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar