Horfir til himins

Horfir til himins

Kaupa Í körfu

HORFÐU til himins, með höfuðið hátt, söng hljómsveitin Nýdönsk um árið. Konan á myndinni hefði vel getað kyrjað lagið er hún leit til himins í miðbæ Reykjavíkur í gær, í miðjum storminum og bleytunni sem fylgdi. Borgarbúar fengu svo sannarlega að finna fyrir fyrstu alvöruhaustlægðinni. Konan á reiðhjólinu lét sig ekki muna um að fara út í óveðrið en það fylgir ekki sögunni við hvern hún er að tala í farsímann. Samkvæmt spám verður eitthvað betra veður um helgina og þá óhætt að fara út á hjólinu eða stunda aðra meinholla útivist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar