Fimleikar drengja

Fimleikar drengja

Kaupa Í körfu

Barnablaðið leit inn á æfingu hjá fimleikadeild Ármanns og sá þar fljúgandi börn á víð og dreif um salinn. Blaðamaður og ljósmyndari þóttust í stórhættu þegar börn komu hlaupandi úr öllum áttum á leið í heljarstökk og skrúfur MYNDATEXTI Erfitt Þessi æfing er sögð ein sú erfiðasta í fimleikunum en hér er Axel í ólum í hringjunum sem strákarnir losna ekki við fyrr en þeir hafa náð 15 ára aldri. Bolurinn hans Axels undirstrikar erfiðleika æfingarinnar en á honum stendur Ef fimleikar væru auðveldir myndum við kalla þá fótbolta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar