Hlegið með forsetanum

Hlegið með forsetanum

Kaupa Í körfu

FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Rauðakrosshúsið við Borgartún í Reykjavík í gær og tók meðal annars þátt í hláturjóga. Á hverjum föstudegi síðan í maí hefur dagskrá vikunnar í Rauðakrosshúsinu lokið með hláturjóga undir stjórn nokkurra hláturjógakennara. Iðkendum er komið til að hlæja með ýmsum leikrænum og skemmtilegum aðferðum. Tíminn er öllum opinn og ókeypis og hefur þátttakendum fjölgað ört en um 20 til 30 manns mæta vikulega, að sögn Sölva Péturssonar hláturjógakennara. Í gær hló forsetinn með Sölva, Jóhönnu Kristjánsdóttur og Þórdísi Sigurðardóttur og skemmtu þau sér konunglega.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar