Bleikt boð Krabbameinsfélagsins

Bleikt boð Krabbameinsfélagsins

Kaupa Í körfu

Stemningin var bleik í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið, þegar Krabbameinsfélag Íslands hélt Bleika boðið sitt. Listasafnið var umvafið bleikum bjarma fyrir allar systur, mömmur, ömmur, dætur, frænkur og vinkonur í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Um þúsund konum var boðið á skemmtunina, þar sem m.a var boðið upp á fjölbreytt tónlistaratriði, argentínskan tangó og vegleg tískusýningu á vegum Fatahönnunarfélags Íslands. Þar sýndu átján hönnuðir og hönnunarfyrirtæki vetrarlínu sína en fyrirsætur voru flugfreyjur frá Icelandair. MYNDATEXTI Hópurinn sem skipulagði og sá um Bleika boðið: Birna Benediktsdóttir, Tara Pétursdóttir, Sigríður Helgadóttir, Dagmar Haraldsdóttir viðburðastjóri Iceland Travel, Ásta Ólafsdóttir og Þóra Björg Jónasdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar