FH - Valur

FH - Valur

Kaupa Í körfu

VALUR hélt sigurgöngu sinni áfram í N1 deildinni í handknattleik um helgina þegar liðið sótti FH heim í Kaplakrika og vann öruggan sigur, 26:15 eftir að hafa haft yfir í hálfleik, 14:9. Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir var markahæst í liði FH með fimm mörk en hún hefur verið drjúg í markaskorun fyrir Hafnarfjarðarliðið í haust. Ingibjörg Pálmadóttir kom næst með fjögur mörk. Hjá Val voru Hrafnhildur Skúladóttir og Ágústa Edda Björnsdóttir atkvæðamestar með sex mörk hvor og Rebekka Skúladóttir gerði fimm. Valur hefur þar með unnið alla fex leiki sína í deildinni undir stjórn Stefáns Arnarssonar þjálfara Hlíðarendaliðsins. MYNDATEXTI Kristín Guðmundsdóttir er hér að skora fyrir Val gegn FH í Kaplakrika.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar