Haukar - FH

Haukar - FH

Kaupa Í körfu

Það er eftirvænting í hópnum enda er alltaf gaman að taka þátt í Evrópukeppni,“ segir Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka í handknattleik karla. Í dag og á morgun mæta Haukar ungverska liðinu PLER KC í 32-liða úrslitum EHF-keppninnar. Báðir leikirnir fara fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum. Í dag verður flautað til leiks klukkan 16 en klukkan 18 á morgun. Haukar skora á handknattleiksáhugamenn að mæta og styðja sig í leikjunum. MYNDATEXTI Pétur Pálsson og félagar í Haukum leika tvo leiki í EHF-keppninni á heimavelli í dag og á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar