Hot yoga

Hot yoga

Kaupa Í körfu

Það var með kvíðahnút í maga sem ég mætti í WorldClass, ég hafði ekki komið inn í líkamsræktarstöð í áraraðir, komst að því fyrir tímann að ég átti ekki íþróttaföt og þurfti að fá lánuð slík í snarhasti og mér leið strax eins og bleikum fíl í verslunarmiðstöð í anddyri stöðvarinnar, algjörlega utangátta. Ekki bætti úr skák að ég var að fara í heitt jóga, stirð eins og rafmagnsstaur og verð máttlaus líkamlega og andlega í miklum hita. Eftir að hafa tvístigið fyrir utan dyrnar á kennslusalnum í nokkurn tíma ákvað ég að hætta öllum aumingjaskap og skella mér í þetta af fullum krafti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar