Eldgos í Eyjafjallajökli

Eldgos í Eyjafjallajökli

Kaupa Í körfu

BÆNDURNIR á Flögu I og II tóku hross sín á hús um hádegisbil í gær eftir að aska fór aftur að falla í Skaftártungu. Hrossin eru vön að ganga úti og voru alls ekki ánægð með þessar tilfæringar. Þau höfðu greinilega alls engan skilning á því að þetta væri þeim fyrir bestu. Nokkur aska féll við Flögubæina í gær og í fyrrakvöld en ofar í Skaftártungu hafði öskufalls ekki gætt í gær. Sigurgeir Gíslason, bóndi á Flögu II, sagði að aska hefði byrjað að falla á áttunda tímanum í fyrrakvöld og haldið áfram fram eftir kvöldi. Um klukkan hálftólf í gær kom síðan stuttur „öskuskúr“ sem stóð yfir í um klukkustund.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar