Mávur myndaður í fyrirsætustörfum

Mávur myndaður í fyrirsætustörfum

Kaupa Í körfu

Útsýnispallurinn við Gullfoss var þétt skipaður þegar ljósmyndara bar að garði í vikunni. Ferðamennirnir voru vel búnir, bæði tækjum og fatnaði í öllum regnbogans litum. Mávur sem átti leið hjá ákvað að setja svip sinn á landslagið og gripu gestir tækifærið og smelltu af. Ráðlegt er að halda í regnjakkann næstu daga, til öryggis, en spáð er austlægri átt og lítilsháttar rigningu öðru hverju sunnan- og vestanlands. Erlendir ferðamenn við Gullfoss

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar