Heim úr skólanum

Heim úr skólanum

Kaupa Í körfu

Á leið heim úr skóla EITT öruggasta merkið um að sumrinu sé að ljúka er að þá má sjá lágvaxið fólk með stóra tösku á bakinu á ferli. Þessi hnáta, sem var á leiðinni heim úr Lækjarskóla í gær, gaf sér tíma til að staldra örstutt við fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins áður en hún hélt í humátt á eftir stöllu sinni. Þótt enn sé hlýtt í veðri hefur henni þótt öruggara að hafa vetrarúlpuna meðferðis enda alltaf hægt að geyma hana undir arminum ef hitinn verður óbærilegur. ( Á leið heim úr Lækjarskóla í Hafnarfirði )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar