Þingholtin
Kaupa Í körfu
Strætisvagninn er eins og gamalt vasaúr, oftast á réttum tíma. Einn af naglföstum hlutum tilverunnar hjá mörgum. Og rétt eins og vísarnir á úrinu ganga sama hringinn, ekur bílstjórinn vagninum hring eftir hring, dag eftir dag. Marinó Viborg ekur leið 110 og segist kunna vel við starfið. Hann hefur ekið stætó í þrjú ár og sér mikið af fólki á hverjum degi. Sumir koma alltaf aftur, rétt eins og vagninn; aðrir sitja í einhvern spöl og sjást aldrei meir. Sumum er illa við strætisvagna en öðrum þykir það góð skemmtun að taka vagninn og horfa úr honum á borgina - og óvíða gefst betra tækifæri til að horfa á borgarana í öllum sínum fjölbreytileika. Og eins og vagnarnir aka um borgina, eru ljósmyndarar blaðsins á ferðinni, að klófesta svipi borgarinnar. MYNDATEXTI: Húsalengjan: Þau eru marglit húsin við Njarðargötu og minna marga á götumyndir sunnan úr Evrópu.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir