"Stúdíó" í Grafarvogi - Útvarp Þormóður
Kaupa Í körfu
Krakkar í 8.-10. bekk í Grafarvogi með útvarp á FM 98,3 Ekkert stress Hæ, er ég í beinni? Já. Hm, hvað segið þið? Útvarpsmennirnir lagfæra heyrnartólin og mjaka sér ábúðarmiklir að hljóðnemunum. Einn þekkir hlustandann og vill fá að vita hvaðan er hringt - úr stærðfræðitíma. Blaðamaður hváir við enda nokkuð viss um að farsímar séu illa séðir í grunnskólum borgarinnar. Samtalið heldur áfram og nokkur stund líður þar til hægt er að fá tvo af útvarpsmönnunum ungu í Útvarpi Þormóði í kjallara gamla Gufunesbæjarins í Grafarvogi til að stíga út úr stúdíóinu í stutt viðtal. Jón Ernst Ágústsson Berndsen, 13 ára, segist stjórna þættinum ásamt Pálma Kristmundssyni, jafnaldra sínum. "Við fylltum út umsókn í skólanum og fengum að vera með þáttinn núna. Hann heitir Sportrönd. Ég veit ekki hvort að við fáum að prófa aftur. Ásgeir og Guðmundur Helgi eru gestir," segir hann og tekur glaðbeittur á móti hinum stjórnanda Sportrandar. MYNDATEXTI: Guðmundur Helgi Guðmundsson, Ásgeir Logi Þórsson, Jón Ernst Ágústsson Berndsen og Pálmi Kristmundsson í beinni. Tæknimaður var Jón Gunnar Gunnarsson.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir