Ráðhús Reykjavíkur

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ráðhús Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

Stjórn Veitustofnana hefur veitt tveimur konum sem stunda nám í verkfræði námsstyrk. Þetta er þriðja árið í röð sem þessir styrkir eru veittir. Styrkina hlutu Hlíf Ísaksdóttir og Margrét Vilborg Bjarnadóttir sem báðar stunda nám í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands. Styrkupphæðin er 300 þúsund krónur og skiptist hún jafnt milli styrkþega. Styrkirnir voru veittir í Ráðhúsinu. F.v. Hildur Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi, Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi, Hlíf Ísaksdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd Margrétar Vilborgar Bjarnadóttur, dóttur sinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar