Slysalaus dagur í umferðinni

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Slysalaus dagur í umferðinni

Kaupa Í körfu

Eftirlit með umferð í Reykjavík var hert gríðarlega í gær vegna umferðarátaks lögreglunnar. frétt: BLAÐAMAÐUR og ljósmyndari Morgunblaðsins fengu að fylgjast með Geir Jóni Þórissyni yfirlögregluþjóni og Ingimundi Einarssyni varalögreglustjóra á morgunvaktinni. Það er ekki dagleg sjón að sjá yfirlögregluþjón og varalögreglustjóra saman í umferðareftirliti en í gær var mikið í húfi og komu jafnvel menn úr rannsóknardeild lögreglunnar félögum sínum í umferðardeild til hjálpar. Voru þeir félagar enda sammála um það að góð væri tilbreytingin að losna úr skrifstofustólnum svona einu sinni og fara á vettvang og finna púlsinn á mannlífinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar