Sigurður Guðmundsson með nýtt listaverk við Barnaspítalann
Kaupa Í körfu
Listaverk eftir Sigurð Guðmundsson afhjúpað við Barnaspítala Hringsins LISTAVERK eftir Sigurð Guðmundsson var afhjúpað á lóð Barnaspítala Hringsins í gær. Efnt var til samkeppni um listaverk á lóðinni árið 2000 og varð hugmynd Sigurðar hlutskörpust í henni. Stórt tré úr bronsi og hlutfallslega enn stærri stóll úr graníti standa á nýrnalaga grunni úr rauðamöl í garði Barnaspítalans og sést verkið úr þremur álmum hússins er snúa að garðinum. Reyndar er þetta ekki eina verkið sem Sigurður gerði fyrir spítalann. Á stóra gangglugga á þremur hæðum byggingarinnar hefur hann sett ævintýri, eða brot úr ævintýrunum um Stóra-Kláus og Litla-Kláus, Nýju fötin keisarans og fleiri. MYNDATEXTI: Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður við nýja verkið á lóð Barnaspítala Hringsins. (Barnaspítali Hringsins)
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir