Unglist

Unglist

Kaupa Í körfu

Íslensk hönnun ungs fólks verður til sýnis í Galleríi Geysi í Hinu húsinu í dag og eru það nemendur í hönnunardeild Iðnskólans í Reykjavík sem sjá um sýninguna sem er hluti af Unglist. Óheftu hugmyndaflugi þeirra var leyft að ráða ferðinni í hönnun þess sem fyrir augu ber og mun því margt skrítið, skemmtilegt og sniðugt prýða galleríið. Sigríður Ásdís Jónsdóttir, Linda Heider Reynisdóttir og Áslaug Þorgeirsdóttir báru hitann og þungann af undirbúningi hönnunarsýningarinnar. Hér eru þær að hengja upp teppi sem Berglind Tryggvadóttir hannaði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar