Kálfur í Húsdýragarðinum

Kálfur í Húsdýragarðinum

Kaupa Í körfu

Nýr meðlimur í Húsdýragarðinum KÝRIN Tinna bar svartri kvígu á föstudag. Faðirinn er enginn annar en hinn víðfrægi Guttormur. Kvígan hefur erft litarhátt móður sinnar en hún er einnig svört. Guttormur er aftur á móti rauðskjöldóttur. Burðurinn gekk eins og í sögu og þurfti Tinna enga aðstoð. Þeim mæðgum heilsast afar vel og er kvígan í óða önn að safna kröftum eftir ferðalagið í heiminn. Öllum er velkomið að koma og líta á nýjasta meðlim garðsins. MYNATEXTI: Margrét Dögg Halldórsdóttir með nýfæddan kálfinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar