Ófærð

Ófærð

Kaupa Í körfu

Þingmenn fóru ekki varhluta af ófærðinni í gær, fremur en aðrir landsmenn. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður festi bifreið sína í snjónum á bílastæði Alþingis og naut liðsinnis samflokksmanns síns Lúðvíks Bergvinssonar, Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra, Guðmundar Guðbergssonar þingvarðar og tveggja tápmikilla drengja við að losa bílinn úr hremmingunum. Verður ekki annað sagt en samstaðan hafi borið árangur í þessu máli. Þingmaðurinn Lúðvík Bergvinsson og ráðherran Siv Friðleifsdóttir ásamt fleirrum hjálpa Jóhönnu Sigurðardóttur eftir að hún hafði fest sig við bílastæði Alþingis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar