Netleikur

Netleikur

Kaupa Í körfu

Í tilefni af íslensku kvikmyndinni 101 Reykjavík, sem er væntanleg í kvikmyndahús, var efnt til spennandi netleiks á mbl.is. Gífurlega mikil þátttaka var í netleiknum sem Morgunblaðið á Netinu og aðstandendur kvikmyndarinnar 101 Reykjavík stóðu að.Vinningshafar voru kampakátir og ánægðir með verðlaunin. Á myndinni eru aðalvinningshafarnir, (t.h.) Rúnar Örn Hafsteinsson sem tekur við verðlaununum af Ingvari Þórðarsyni framleiðanda myndarinnar og (t.v.) afhendir Baltasar Kormákur leikstjóri, sem jafnframt leikur í myndinni, Sveini Erlingssyni vinningana. Á myndina vantar þriðja vinningshafann, Ragnheiði Kr. Guðmundsdóttur. Eins og sést á myndinni var verðlaunaafhendingin fest á filmu en myndatökmaður Vélarinnar, sem sýnd er í Sjónvarpinu, Bjarni Grímsson, mætti á staðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar