Við Elliðaá

Við Elliðaá

Kaupa Í körfu

Veiðimenn búsettir á höfuðborgarsvæðinu þurfa ekki að fara langt til að svala veiðiþorstanum því ein af fjölmörgum laxveiðiám landsins rennur í gegnum borgina miðja. Veiðin í Elliðaám hófst þann 15. júní og í gær höfðu 157 laxar verið dregnir á land. Ekki fylgir það sögunni hvernig veiðin gekk hjá þessum ágætu mönnum. Annar þeirra stendur einbeittur með stöngina við árbakkann en hinn virðist hafa fengið nóg í bili og ákveðið að taka sér stutt kaffihlé.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar