Bíllinn bónaður

Bíllinn bónaður

Kaupa Í körfu

MARGIR bifreiðaeigendur fagna bjartviðrisdögum eins og þeim sem glatt hafa Sunnlendinga að undanförnu, og líta þá þvottaplön hýru auga. Þótt fyrsti vetrardagur nálgist óðfluga voru fáir fyrirboðar um kulda og dimmviðri í loftinu í gær og fyrradag og gafst gott tækifæri til að njóta útiveru um leið og heimilisbíllinn var tekinn í gegn. Skýjað verður með köflum í dag og fer veður hlýnandi í framhaldinu. Spáð er bjartviðri á landinu fram á sunnudag, að undanskilinni súld við austurströndina á föstudag og laugardag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar