Davíð Oddsson

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Davíð Oddsson

Kaupa Í körfu

Þegar ég fæddist stjórnaði Hannes Hafstein landinu. Þannig byrjar fyrsta smásagan; Snúist til varnar Íslandi, í fyrra smásagnasafni Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra; Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Nú stjórnar Davíð Oddsson landinu úr því húsi, sem byggt var yfir íslenzka fanga, en hýsti svo fyrsta ráðherrann og oddvita stjórnarinnar allar götur síðan. Smásaga Davíðs, þótt hann færi hana frá sér í tíma og rúmi, geymir mynd af Hannesi Hafstein, sem greypzt hefur í huga höfundarins. Þess má nefnilega sjá víða merki, að forsætisráðherrann vitnar í ræðu og riti til fyrsta ráðherrans. - Af hverju þetta dálæti á Hannesi Hafstein? MYNDATEXTI: Forsætisráðherrann | Davíð Oddsson segir, að Hannes Hafstein ráðherra hafi verið réttur maður, á réttum stað, á réttum tíma.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar