Sögusafnið - Haraldur Hárfagri

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sögusafnið - Haraldur Hárfagri

Kaupa Í körfu

VALDABRÖLT Haraldar konungs hárfagra í Noregi átti stóran þátt í að hópur Norðmanna tók sig upp og flutti til Íslands. Nú eru Íslendingar búnir að búa til Harald hárfagra og eru að selja hann til Noregs! Það er Ernst Backman hjá Sögusafninu sem stendur fyrir þessum óvenjulega útflutningi, en Ernst hefur fengist við að búa til sögupersónur úr sílíkoni í nokkur ár. Hróður hans hefur nú borist út fyrir landsteinana og er hann að leggja lokahönd á sex gínur sem eiga að fara á nýtt safn í Avaldsnesi í Noregi. Auk Haraldar eru þetta Gyða kona hans, Ólafur Tryggvason Noregskonungur og þrjár aðrar persónur sem tengjast uppgreftri á staðnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar