Þristavinafélagið

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þristavinafélagið

Kaupa Í körfu

LANDGRÆÐSLAN afhenti í gær Þristavinafélaginu DC-3 vélina Pál Sveinsson til umráða endurgjaldslaust. Tekur félagið að sér að sjá um að halda vélinni flughæfri og sinna áburðarflugi eftir nánara samkomulagi. Einnig verður vélin notuð til sýningahalds og mun hún t.d. taka þátt í flugsýningu í Duxford í Englandi um aðra helgi. Afhendingin fór fram í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli að viðstöddum fjölmörgum félögum í Þristavinafélaginu og gestum MYNDATEXTI: Skrifað undir samninga Þristavinafélagsins, Landgræðslunnar og Icelandair. Frá vinstri: Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavinafélagsins, og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar