Ráðherraskipti - Davíð Oddsson hættir

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ráðherraskipti - Davíð Oddsson hættir

Kaupa Í körfu

Ráðherraskipti í ríkisstjórninni í gær og annað ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar tók við á Bessastöðum Halldór og Geir leysa hvor annan af líkt og þeir Halldór og Davíð gerðu Geir H. Haarde tók við embætti utanríkisráðherra af Davíð Oddssyni á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær. Davíð lét af ráðherradómi eftir rúmlega fjórtán ára samfellda setu í ríkisstjórn. Árni M. Mathiesen tók við embætti fjármálaráðherra af Geir og Einar K. Guðfinnsson tók við embætti sjávarútvegsráðherra. MYNDATEXTI: Davíð Oddsson gengur úr utanríkisráðuneytinu í gær eftir að hafa afhent Geir H. Haarde lyklavöldin. Á leiðinni út gekk hann framhjá mynd sem komin var upp á vegg af nýjum utanríkisráðherra. Fyrir aftan Davíð er Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar