Sæmilega syndir

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sæmilega syndir

Kaupa Í körfu

Frændurnir Anton Antonsson og Stefán Máni Unnarsson léku á als oddi í trúðapottinum. Anton, sem er sex ára, sagðist kunna svona sæmilega að synda þótt hann hefði ekki farið á sundnámskeið. "Ég myndi ekki þora í rennibrautina. Það stendur líka á skiltinu að maður verður að vera 8 ára." Hann hafði góðar gætur á Stefáni Mána, frænda sínum, sem er að verða þriggja ára en sá sagði kotroskinn að hann kynni ekki að synda. Hann var þó fljótur að jánka því að það ætlaði hann sko að læra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar