Sveinbjörn Jónsson

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sveinbjörn Jónsson

Kaupa Í körfu

SAMSETNING þorskstofnsins, sérstaklega góður 10 ára árgangur, á að tryggja góða nýliðun á næstu árum og engin ástæða til taugaveiklunar og stófellds niðurskurðar veiða. Þetta er skoðun Sveinbjörns Jónssonar, uppfinningamanns og fyrrverandi sjómanns, sem lengi hefur fylgst með þróun þorskstofnsins. Hann telur að niðurskurðurinn leiði til stórfellds brottkasts á þorski við veiðar á öðrum tegundum. Sveinbjörn skrifaði á sínum tíma fjölda greina um áhugamál sitt, þorskstofninn, meðal annars í sjávarútvegsblað Morgunblaðsins. Hann byggir skoðanir sínar á staðreyndum sem fram koma í skýrslum Hafrannsóknastofnunarinnar en túlkar þær á annan hátt. MYNDATEXTI Sveinbjörn Jónsson er áhugamaður um þróun og uppbyggingu þorskstofnsins og hefur sterkar skoðanir á aðgerðum til að byggja hann upp.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar